Þetta er yndislegur dagur

Margrét Sig.

20.06.2007 20:14:36 / perla

hætt

Bara að láta vita að ég er hætt hér en er komin með nýja sem ég er að prufa.

þið sem eruð klár á netinu getið kannski fundið mig en fyrir hin er það bara ??

með kveðju Margrét:lol:


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.06.2007 11:35:57 / perla

Rólegt

Hér er frekar rólegt þessa daga hjá mér er reyndar búin að vera gera sumarþrifin út í skóla og er næstum búin:D ætlaði að eiða þessum dögum með Vignir en hann nennir bara ekkert að hanga yfir mér skrýtið8| Ég ætla að reyna að koma honum á námskeið í næstu viku því ég ætla að vinna smá aukavinnu frá 9-2 hann vill ekki fara í fótboltaskóla svo nú verð ég bara að reyna finna annað, var að hugsa um að leita uppi golf námskeið ef það væri en laust á það.

Sólin er farin í bili ég vona að hún hafi ekki fari langt það eru sex vikur þangað til við förum í sólina og ég vona að hún láti sjá hér allaveg einhverja daga:)

Var að hugsa um að hreyfa mig smá úti (það er fínt veður þótt að það sé ekki sól) ég held að ég hafi bara gott af því:haha:

Hafið það gott:D


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.06.2007 19:18:55 / perla

sumarfrí

Þá er skólinn búinn og ég er komin í sumarfrí frá honum8)

Ég ætla að njóta þess að liggja í leti næstu daga en ætla svo að fara í smá aukavinnu. Axel byrjaði í sinni vinnu í gær frá 7-5 nema á föstudögum er hann búinn um klukkan 3, það var frekar erfitt hjá honum að vakna í morgun ,var líka alveg búinn þegar hann kom heim í dag og svaf í þrjá tíma eða þanga til að pabbi hans kom og náði í hann já þetta er ekki svo auðvelt að vera komin í fulla vinnu:D

Skólaslit voru á miðvikudaginn hjá okkur og eftir það kíktum við nokkur á kaffihús á eftir í smá spjall, mér var boðið í mataboð í gær þar sem var frábært  matur og skemmtilegt fólk:D

Gísli Grétar litli frændi var 1 árs í gær og pabbi hans er að útskrifast á morgun úr HR svo það verða bara áfram veisluhöld hjá mér ég veit ekki hvar þetta endar (ætli ég verð bara ekki meiri og meiri á þvervegin)

Nú ætla ég að koma mér í heitt bað og slaka á enda ein heima ,hafið það gott í þessu frábæra veðri8)

ps. verð að setja stjörnuspána mína hér inn

Hristu upp í rútínunni. Gerðu þetta skemmtilega sem þig hefur lengi langað til að gera. Ekkert er of villt, og vinirnir munu fylgja þér. Jibbý!


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.06.2007 19:06:44 / perla

sof þú!!!!

Ég hef gaman af Baggalút og þetta eru frekar skemmtilegir textar;) eða hvað finnst ykkur hér er sumarsmellur frá þeim sem heiti þessu frábæra nafni,,,

Sof þú mér hjá, og textinn kemur hér líka

 

Þú ert eins og dagrenning í disneymynd.
Dásamlega hrekklaus, líkt og veturgömul kind.
Þú er ljós á húð og hár.
Þú ert hrein og klár.
Þú ert blíð, snoppufríð - þú ert mín.

Þú ert mér sem lyftiduft í lífsins deig.
Lostafull sem fagurmótuð sending inní teig.
Þú ert dável samansett,
bæði sæt og nett.
Þú ert rjóð, þú ert góð - þú ert mín.

Lof mér að liggja hjá þér.
Leyf mér að hneppa frá.
Hvíla við hvarm þinn,
halda þétt um arm þinn.
Girnilega gullinbrá - gerðu það, segðu nú já.
Ó, sofðu mér hjá.

Mig langar til að hrifsa þig úr hverri spjör.
Hjúpa þig í sýrópi og bananalíkjör.
En þú aftrar þeirri ósk
því þú ert svo þrjósk.
Þú ert þver, samer mér - þú ert mín!

Lof mér að leggjast hjá þér.
Leyf mér að hneppa frá.
Hvíla við hvarm þinn,
hjúfra mig við barm þinn.
Lokkaprúða lipurtá - lof mér að þreifa þér á.

Lof mér að liggja hjá þér.
Leyf mér að hneppa frá.
Hvíla við hvarm þinn,
handleika barm þinn.
Hættu að gráta hringaná - farðu nú að þér að sjá.
Æ, sofðu mér hjá.
Hafið það gott ein sem hefur ekkert annað að gera " nema leika sér á netinu" :haha:

» 2 hafa sagt sína skoðun

03.06.2007 00:45:10 / perla

tíminn!!

Já það er ótrúlegt hvað tíminn líður hratt eldri sonurinn femdur og litli orðinn 11 ára það er samt eitt skrýtið við þetta ég held að ég sé en 25 eða allavega 30,,,,,,   og ekki degi eldri:lol:

Hér var mikill afmælisveisla hjá Vignir á föstudaginn sem stóð alveg fram á kvöld fyrst var bekkjapartý og svo var það fjölskyldan hann var líka fljótur að sofna um kvöldið þegar allir voru farnir.

 En ég var búin að drekka svo mikið af kaffi að ég kíkti aðeins í vinnu partý um miðnætti til að ná mér niður:D kom mér svo heim um tvö var orðin frekar þreytt þá enda löngu komin svefn tími á mig.

 Hafið það gott og munið að lifa lífinu8)

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.05.2007 22:35:02 / perla

London;)

)Þetta var frábær helgi vaknaði reyndar um fjögur aðfaranótt laugadags til að koma mér að stað það var farið í loftið kl. 7 var lent um 11 á staðartíma.

Þá var bara að koma sér í lestina til Liverpool st. og taxa upp á hótel henda töskunni inn svo var þrammað niðrá oxford st. þar sem ég hitti Fríðu vinkonu hún var að koma frá spáni svo það var ákveði að hittast á miðri leið.

Það var ekki leiðilegt hjá okkur mikið skoðað í búðir og labbað alveg upp á hálsi8)

um kvöldið fórum við á Ask og fengum okkur smá málsverð voru reyndar smá þreyttar svo við komum okkur í rúmið um miðnætti vorum svo komnar snemma á fætur (maður eiðir nú ekki miklum tíma til að sofa í útlöndum) :D tékkuðum okkur svo út um kl. 10 og fengum okkur aftur góðan göngutúr:D þrömmuðum alveg þangað til að við fórum upp á hótel um kl. hálf fimm að ná í töskunar það hafði smá meiri farangur bæst í hópinn8)

Veðrið var frábært sól og hlýtt, við tókum taxa á lestarstöðinna en fengum svo að vera í lestinni um tvo tíma þar sem hún víst var að of hitna (svo við getum sagt að þetta hafi verið hæg lest) við komust samt í flugvélina en gátum ekkert eytt í fríhöfninni:$

Svo bíð ég bara eftir næstu London ferð hver vill koma með:D

 Hafið það gott


» 4 hafa sagt sína skoðun

18.05.2007 22:33:28 / perla

London

Hér er ég:lol: það er svo mikið að gera hjá manni á þessum tíma að það mætti bæta nokkrum klukkutímum inn í sólarhringinn hjá mér:o

En það er víst komið sumar og það sýndi sig líka í dag frábært veður og svo er verið að kvarta yfir gamla góða fróni.

Hvað um það þessa daga er ferðalag á mér skrapp eina helgin um daginn með Vignir til Vestmanneyja sem var mjög gaman alltaf gaman að koma til eyja.

En þetta var bara smá upphitun því á morgun ætlar ég að taka flugið til London og leika mér þar í rúman sólarhring8) ja ætli maður kíki ekki í eina eða kannski tvær búðir8)

Ef ég skila mér ekki heim aftur þá leitið þig kanski af mér í London þegar þið skreppið þangað næst:)

Jæja nú ætla ég að fara koma mér í rúmið þarf víst að fara á fætur í nótt svo það er kominn háttatími á mig hafið það gott þangað til næst:D


» 2 hafa sagt sína skoðun

31.03.2007 12:17:04 / perla

páskar

Nú er ég komin í páskafrí og ætla líka njóta þess að liggja í leti;)

 Hafið það gott um páskana og Gleðilega páska:lol:

 smá páskakveðja hér:haha:

http://egg.d21c.com/egg.swf


» 1 hafa sagt sína skoðun

28.03.2007 16:55:48 / perla

Lifandi

Hér er ég sprell lifandi og bara kominn vor hugur í mig frábært veður þessa daga.

Fermingin hjá Axel Erni gekk vel fyrir sig við vorum alla vega ánægð með hana og scrapp albúmið sem ég gerði vakti mikla lukku svo nú er bara að byrja fyrir Vignir :D

Nú verð ég að fara hreyfa mig aftur hef bara borðað síðustu þrjár vikur og gleymt að hreyfa mig komst reyndar upp í Hress í gær á göngubrautina bara nokkuð góð hékk á henni í 40 mín,,, það var nóg fyrir mig þennan daginn.

Það væri nú ekki vitlaust að fara út í þetta góða veður og labba smá í stað þess að hanga í þessari tölvu:S

Axel er að fara á árshátíðina í skólanum í kvöld svo það er bara spurnig hvort við Vignir förum ekki bara út að borða:lol: bara að bæta nokkrum grömmum á sig8)

 kveð í bili hafið það gott í þessu frábæra veðri8)


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.03.2007 13:03:02 / perla

fötin

Núna fer allt að verða klárt fyrir ferminguna Axel komin með fötin, skóna þá er allt komið ég ætla ekki að hafa fyrir matinum nema ég verð víst að opna veskið já iss maður fer nú létt með það enda er ég líka með góða samninga;)

 Hér verður bakað á morgun ein kransakaka og önnur til ég á svo frábæra vinnufélaga sem bara koma heim og baka með mér:lol:

Ég hangi hér inni með Vignir veikan hann var með yfir 39 stiga hita í gærkveldi ég held að hann sé orðinn hitalaus núna er ekki alveg að skilja hvernig hann verður veikur fyrir betur fer kanski! er ég bara heppin,

Jæja þangað til næst hafið það gott;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.02.2007 23:21:22 / perla

aftur helgi?

Úff nú værir mín til í það að sletta rækilega úr klaufunum:$ já hvernig væri bara að skella sér út á lífið og bara flippa út:haha: nei ég ætla að verða þessi fyrimyndarmamma og mæta til kirkju í fyrramálið var í allan dag á Selfossi þar sem Vignir var að keppa í handbolta það má segja að hér á þessum heimilið er það ekki ég sem ræð helgunum mínum;) kostur við þetta er að ég þarf ekki að hugsa það er búið að gera það fyrir mig:haha:

jæja nú ætlar góða konan að fara koma sér í háttinn enda ætla ég að láta blessa mig á morgun, hafið það gott :D


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.02.2007 18:53:07 / perla

Helgin

Nú verð ég að fara koma mér í ræktina hef bara verið að borða síðustu daga ég held að ég sé að verða búin með afgangana síðan í afmælinu hjá Axel + það að borða steikur alla helgina já bróðir minn bauð mér líka í grill mat í gær Siggi frændi og fjölskylda hans voru þar líka horfðum svo á söngvakeppnina og viti menn ég ákveðaði að gefa gamla manninum mitt atkvæði og jú hann verður fulltrúi okkar þetta árið svo er bara spurnig hvort hann kemur okkur í aðalkeppnina:lol:

ekki meira í bili er að bíða eftir englabossunum mínum og verð að fara athuga matinn já það er nú eins gott að borða meira svo maður verður sver og flott:haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.02.2007 19:23:00 / perla

Kökur!!

 

 Hér er kvef og strengir að drepa mig gat varla gengið í dag það var tekið svo hraustlega á í ræktinni á mánudaginn að ég verð bara alla vikuna að jafna mig,,

Fermingafötin voru keypt um helgina við Axel skruppum í kringluna á laugadaginn og fórum inn í eina búð og kláruðum það nú er bara skórnir eftir hann er reyndar búinn að ákveða hvernig þeir eiga að vera það er bara að koma sér og eiða meira:D

Það er afmælisdagur hjá Axel á morgun og ætlar hann að bjóða fjölskyldunni í kaffi ég er alltaf að bíða þangað til að hann fari og gerir kræsingar en hann er víst að bíða eftir mér:lol:

Ætla að fara koma mér í eldhúsið :D


» 4 hafa sagt sína skoðun

09.02.2007 23:14:09 / perla

matur

 

Núna er komin helgi einu sinni en það er bara alltaf helgi:D

Ég var með matargesti í kvöld þar sem lambalæri og reyktur kjúklingur var borin fram og rann það vel í gestina eða það held ég:D

Nú fer að líða af fermingu hjá Axel Erni eða það eru reyndar 6 vikur þangað til en þetta verður örugglega allt of fljótt að líða ég er að hugsa um að fara kíkja eftir ferminga fötum á hann um helgina ef ég verð í stuði:D


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.02.2007 19:00:29 / perla

Hello

 

 

Hér er ég komin með nýja tölvu og brosi út að eyrum:haha: eða þanga til í fæ vísa:D

Hér er annas allt gott að frétta alltaf nóg að gera Hörður bróðir var fertugur á mánudaginn og ég er farin að gera mér grein fyrir því hvað bræður mínir eru að verða gamlir8)

Hér situr unglingurinn minn og röflar yfir mér já þessi sem verður 14 ára eftir 7 daga og ég er bara 25:lol: gat verið hann segir að ég sé ekki 25 :$ það er gott að vera með ritskoðun hér inni ég ætla að sitja yfir honum næst þegar hann fer í tölvuna:haha:

Ég nenni ekki að skrifa hér meira hér inn þegar hann situr hér ég ætla að fara skoða beru kallana á netinu8)

Þangað til næst hafið það gott kv. Margrét


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 13
Barnaland